Opnunartími og dreifing yfir hátíðarnar
Kæru viðskiptavinir
Vinsamlega kynnið ykkur upplýsingar um opnunartíma söludeildar og afgreiðslu í MS Reykjavík sem og dreifingu fyrirtækisins um hátíðarnar. Mjög mikilvægt er að panta tímanlega fyrir vöruafhendingu laugardaginn 27. desember og laugardaginn 2. janúar.
Hátíðarkveðja MS
Senn líður að lokum þessa árs og við þessi tímamót gefst okkur sem störfum hjá Mjólkursamsölunni tækifæri til að líta yfir farinn veg og rifja upp verkefni ársins sem er að líða. Við erum nú sem fyrr einstaklega þakklát íslenskum kúabændum, eigendum okkar, sem standa vaktina allan ársins hring, og viðskiptavinum sem eru okkur hvatning til góðra verka og taka fagnandi á móti fjölbreyttum vörunýjungum sem við setjum á markað á hverju ári.
Til hamingju með sigurinn - fyrir íslenskuna
Mjólkursamsalan hefur í rúm 30 ár beitt sér fyrir eflingu móðurmálsins og hefur textasamkeppnin Fernuflug verið eitt af sýnilegustu verkefnum okkar í þeim efnum. Yfir 1.200 textar bárust í keppnina í ár frá nemendum í 8.-10. bekk um allt land og nú liggja úrslitin fyrir.
Snemmbúin jólagjöf frá Hleðslu
Við erum einstaklega spennt að færa landsmönnum snemmbúna jólagjöf frá Hleðslu en í einni skvísu af Hleðslu próteinskyri eru 20 g af hágæða íslenskum mjólkurpróteinum og þar af eru 8 g mysuprótein. Skyrið er silkimjúkt, fitu- og laktósalaust og fer því vel í maga. Að auki inniheldur próteinskyrið allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar, þar á meðal greinóttu amínósýrurnar BCAA og ekki skemmir fyrir að geta boðið upp á þessa nýjung í tveimur ólíkum og einstaklega góðum bragðtegundum.
Þitt er valið
Öll viljum við borða hollan og góðan mat. MS býður upp á breitt úrval af næringarríkum mjólkurvörum, allt frá smjöri og ostum yfir í skyrdrykki og jógúrt. Í dag er svo komið að neytendur hafa fjölbreytt val í öllum helstu vöruflokkum MS og höfum við unnið markvisst að því síðustu ár að minnka hlutfall viðbætts sykurs í afurðum okkar. Rúmlega 92% af allri mjólk sem kemur til MS fer í hreinar afurðir eða vörur án viðbætts sykurs.

Við erum MS
Mjólkursamsalan er fjölbreyttur vinnustaður og óhætt að segja að ein helsta auðlind MS sé mannauðurinn. Hjá okkur starfa um 450 starfsmenn um land allt sem mynda marga ólíka en samheldna hópa sem eiga það sameiginlegt að búa yfir mikilli reynslu, færni og þekkingu í sínum störfum.
Meginmarkmið okkar er ánægt starfsfólk sem hefur skýra ábyrgð og góða sérþekkingu á sínu sviði sem saman vinnur sem ein liðsheild að markmiðum fyrirtækisins.
Í góðri sátt við náttúru og samfélag


Mjólkursamsalan einsetur sér í allri starfsemi sinni, allt frá söfnun mjólkur frá framleiðendum til framleiðslu og dreifingar fullunninnar vöru til viðskiptavina, að starfa í sátt við umhverfi sitt og náttúru landsins hverju sinni. Við leitumst við að endurspegla umhverfisvæn sjónarmið í öllum skrefum virðiskeðjunnar og leggjum ríka áherslu á bestu umgengni okkar til verndar umhverfinu og náttúru landsins.
Til að ná sem bestum árangri í umgengni við umhverfi og lífríki, leggur MS megináherslu á eftirtalda þætti sem tengjast umhverfisvernd með beinum hætti: loftlagsmál, vatnsverndar- og frárennslismál og umbúða-, aðfanga- og úrgangsmál.



















