Jólajógúrtin frá MS er fyrir löngu orðin hluti af jólahefðum margra Íslendinga. Á hverju ári bíða margir spenntir eftir að þessi jólalega góðgæti snúi aftur í verslanir og færi með sér kunnuglegt bragð hátíðanna.
Í ár hafa orðið smávægilegar breytingar á toppinum sem fylgir jógúrtinni vegna óvæntra breytinga hjá birgjanum okkar. Okkur þykir það miður enda vitum við að fyrir marga er toppurinn ómissandi hluti af upplifuninni. Góðu fréttirnar eru þó þær að jógúrtin sjálf er nákvæmlega eins og áður, jafn góð, ljúffeng og jólaleg og við þekkjum hana.
Þó að toppurinn hafi tekið smávægilegum breytingum er jólabragðið því enn á sínum stað og jólajógúrtin tilbúin að gleðja bragðlaukana í aðdraganda hátíðanna.
