Beint í efni
En

Mjólkurvörur frá MS hlutu 24 verðlaun í alþjóðlegri matvælakeppni

Mjólkurvörur frá Mjólkursamsölunni (MS) hlutu alls 24 verðlaun í International Food Contest 2026 sem fram fór í Danmörku nú í lok október. Árangurinn var einkar glæsilegur en tvær vörur hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi gæði, auk þess sem tvær vörur hlutu gullverðlaun.

International Food Contest er alþjóðleg matvælakeppni þar sem vörur frá fjölmörgum framleiðendum eru metnar af sérhæfðum dómurum. Við matið er meðal annars horft til útlits, áferðar, bragðs og lyktar. Keppnin er mikilvægur vettvangur fyrir matvælaframleiðendur til að bera saman gæði vara sinna og fá faglegt mat á framleiðslunni.

Í ár hlutu tvær vörur frá MS viðurkenninguna Exceptional Performance, sérstök heiðursverðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur í viðkomandi keppnisflokki. Það voru annars vegar Mexíkóostur, framleiddur á Akureyri, og hins vegar Óskajógúrt með blönduðum ávöxtum, framleidd á Selfossi.

Tvær vörur frá MS hlutu jafnframt gullverðlaun. Þar var um að ræða Dala Höfðingja, sem framleiddur er í Búðardal, og Óskajógúrt með kaffibragði, sem framleidd er á Selfossi.

Auk þessara viðurkenninga hlutu vörur frá MS sex silfurverðlaun og fjórtán bronsverðlaun. Verðlaunin dreifðust á fjölbreytt úrval mjólkurvara, allt frá ostum og skyri til jógúrts, mjólkurdrykkja og eftirrétta.

Þessi góði árangur er ánægjuleg staðfesting á þeim gæðum og þeirri þekkingu sem býr að baki íslenskri mjólkurframleiðslu. Hann endurspeglar jafnframt metnað og fagmennsku starfsfólks MS sem leggur daglega sitt af mörkum til að framleiða fjölbreyttar og vandaðar mjólkurvörur fyrir neytendur.

Björn S. Gunnarsson, Dofri Vikar Bragason, Guðmundur Sigurjónsson og Kristín Hrund Kjartansdóttir, fulltrúar MS veittu verðlaununum móttöku.

Heildarskiptingu verðlauna MS má sjá hér að neðan:

Heiðursverðlaun

  • Mexíkóostur – MS Akureyri
  • Óskajógúrt með blönduðum ávöxtum – MS Selfoss

Gullverðlaun

  • Dala Höfðingi – MS Búðardalur
  • Óskajógúrt með kaffibragði – MS Selfoss

Silfurverðlaun

  • Góðostur, 8 sneiðar – MS Reykjavík
  • Ísey skyr protein - ferskjubragð – MS Selfoss
  • Ísey skyr með bláberjum, 125 g – MS Selfoss
  • Ísey skyr með jarðarberjum, 170 g – MS Selfoss
  • Ísey skyr með jarðarberjum og hvítu súkkulaði – MS Selfoss
  • Kókómjólk, 250 ml – MS Selfoss

Bronsverðlaun

  • Pepperóníostur – MS Akureyri
  • Smurostur með beikoni – MS Akureyri
  • Skinkumyrja – MS Akureyri
  • Dala Auður með chili – MS Búðardalur
  • Dala Auður – MS Búðardalur
  • Ab mjólk með jarðarberjum – MS Selfoss
  • Ab jógúrt með ferskjum – MS Selfoss
  • Ísey skyr með jarðarberjum, 125 g – MS Selfoss
  • Ísey skyr með bláberjum, 170 g – MS Selfoss
  • KEA skyr með bláberjum og jarðarberjum – MS Selfoss
  • Hrísmjólk með karamellusósu – MS Akureyri
  • Hleðsla próteinkaffi – MS Selfoss
  • Hleðsla með jarðarberjum – MS Selfoss
  • Hleðsla kolvetnaskert með súkkulaðibragði – MS Selfoss

Samtals hlutu 24 vörur frá MS verðlaun í keppninni: tvö heiðursverðlaun (e. Exceptional Performance, tvenn gullverðlaun, sex silfurverðlaun og fjórtán bronsverðlaun.