Beint í efni
En

Íslenskur mascarpone fær súkkulaðisnúning

Nú bætist einstaklega girnileg nýjung í ostafjölskylduna hjá MS. Í fyrsta sinn kemur á markað íslenskur mascarpone með súkkulaðibragði – spennandi sérútgáfa sem kemur í tilefni af Ostóber, þegar íslenskum ostum er gert sérstaklega hátt undir höfði allan októbermánuðinn.

Það besta er að það eru engar reglur um hvernig á að njóta hans. Mascarpone með súkkulaðibragði er dásamlegur með ferskum ávöxtum og berjum, frábær í kökur, krem og aðra eftirrétti og tilvalinn í bakstur. Svo má auðvitað líka grípa skeið og njóta hans nákvæmlega eins og hann er, beint upp úr dósinni – við dæmum engan.

Íslenskur mascarpone með súkkulaðibragði býður upp á endalausa möguleika fyrir þá sem vilja gera eitthvað gott enn betra. Prófaðu þig áfram, leyfðu hugmyndafluginu að ráða og hver veit nema nýja uppáhaldið þitt leynist í dósinni.