Kokkalandslið Íslands er lagt af stað til Lúxemborgar þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary World Cup. Að baki eru margir mánuðir af metnaðarfullum undirbúningi og stífum æfingum þar sem íslenskt matreiðslufólk hefur lagt allt kapp á að ná sem bestum árangri á alþjóðlegum vettvangi.
Fram undan eru tveir spennandi keppnisdagar. Laugardaginn 21. nóvember keppir liðið í Restaurant of Nations þar sem framreidd verður þriggja rétta máltíð fyrir 110 gesti. Þriðjudaginn 24. nóvember tekur síðan við keppni í Chef’s Table þar sem hæfileikar, útsjónarsemi og fagmennska keppenda fá að njóta sín.
Mjólkursamsalan hefur um árabil verið stoltur bakhjarl Kokkalandsliðs Íslands og lagt sitt af mörkum til að styðja við það öfluga starf sem þar fer fram. Okkur þykir einstaklega ánægjulegt að fylgjast með íslensku matreiðslufólki láta ljós sitt skína á alþjóðlegum vettvangi og sýna hvað íslensk matargerð hefur upp á að bjóða.
Við óskum öllu liðinu, þjálfurum og aðstandendum góðs gengis í keppninni og hlökkum til að fylgjast með af hliðarlínunni.
Áfram Ísland!
