KEA smáskyr í skvísum
Nýja smáskyrið fæst í þremur bragðtegundum: vanillu, jarðarberja og banana. Hvert smáskyr er 90 g og er því tilvalið nesti í skóla og vinnu og þá hentar það einstaklega vel fyrir fólk sem er að ferðast þar sem það má taka þetta magn með sér í flugvél. Nýja skyrið er líkt og aðrar KEA skyr bragðtegundir próteinríkt, laktósalaust og einstaklega bragðgott.
![](https://images.prismic.io/ms-www/945c947b-dbfb-44ab-a57f-770e4d6a826a_KEA+sm%C3%A1skyr+-+facebook+cover+%281920+%C3%97+1080+px%29.png?auto=compress%2Cformat&crop=focalpoint&fit=crop&fp-x=0.49&fp-y=0.50&w=1640&h=923)
Þetta gamla góða
Sígilda og sívinsæla bragðið sem allir þekkja og allir elska, bæði eitt og sér eða í bland við ávexti og fleira í hollri hræru. Þetta gamla góða kemur í þremur bragðtegundum, hreint, vanillu og bláber og jarðarber. Skyrið inniheldur 21-24 g prótein.
![](https://images.prismic.io/ms-www/45eb12e7-9e6e-44b0-b0f0-975ba89b9fcd_KEA-02.jpg?auto=compress%2Cformat&crop=focalpoint&fit=crop&fp-x=0.50&fp-y=0.50&w=1640&h=923)
Kolvetnaskert
Spennandi bragðtegundir fyrir alla sem vilja minna af kolvetnum án þess að gefa neinn afslátt af góðu bragði. Kolvetnaskert KEA skyr kemur í fjórum bragðtegundum, salt karamellu, vanillu, kaffi/vanillu og jarðarber/banana.
![](https://images.prismic.io/ms-www/a3aa21ef-3a99-48d6-90e2-f4b16444df98_KEA-18.jpg?auto=compress%2Cformat&crop=focalpoint&fit=crop&fp-x=0.50&fp-y=0.50&w=1640&h=923)
Ávextir í botninum
Tvö lög - og bæði góð. Hreint og ljúffengt skyr með bragðgóðum ávöxtum í botninum. Fyrir þau sem vilja hræra aðeins upp í þessu. Skyr með ávöxtum í botni kemur í tveimur bragðtegundum, mangó og jarðarber í botni. Hvert skyr inniheldur 18 g prótein.
![](https://images.prismic.io/ms-www/1aad4147-34b9-4718-abfe-6d67296a1e89_KEA+mang%C3%B3.png?auto=compress%2Cformat&crop=focalpoint&fit=crop&fp-x=0.50&fp-y=0.50&w=1640&h=923)