Alþjóðlegi Skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur síðasta miðvikudag í september víða um heim ár hvert að hvatningu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO (Food and Agriculture Organization). Hér á landi hefur dagurinn jafnframt markað upphaf árlegrar teiknisamkeppni fyrir nemendur í 4. bekk, skemmtilegrar hefðar sem hefur fest sig í sessi í íslensku skólasamfélagi og stendur hún yfir frá 30. september til 22. janúar 2027.
Teiknisamkeppnin hefur notið mikilla vinsælda meðal nemenda og kennara í gegnum tíðina og þátttakan verið einstaklega góð. Að jafnaði berast um og yfir 1.300 myndir frá skólum um allt land þar sem sköpunargleði og hugmyndaflug nemenda fá að njóta sín. Mennta- og barnamálaráðherrar hafa um árabil komið að vali verðlaunamynda og bent á mikilvægi verkefna af þessu tagi fyrir skólasamfélagið. Við vonum að sjálfsögðu að 4. bekkingar um land allt taki jafn vel í keppnina í ár.
Myndefnið er að venju frjálst og því fá nemendur fullt frelsi til að láta hugmyndaflugið ráða ferðinni. Í gegnum árin hafa íslenska sveitin, húsdýr, hollusta, heilbrigði og hreyfing verið meðal vinsælla viðfangsefna, en engar skorður eru settar á sköpunargleðina. Markmiðið er fyrst og fremst að hvetja börnin til að skapa, prófa sig áfram og sýna hvað í þeim býr.
Og það er sannarlega til mikils að vinna! Í mars á næsta ári verða tíu bestu myndirnar að mati dómnefndar verðlaunaðar. Fyrir hverja verðlaunamynd veitir MS 50.000 kr. peningagjöf sem rennur óskipt í bekkjarsjóð teiknarans. Vonin er að verðlaunin nýtist bekknum til að gera eitthvað skemmtilegt saman, í samráði við umsjónarkennara, bekkjarfulltrúa og/eða skólastjórnendur.
Myndum skal skilað á A3 blaði fyrir 22. janúar 2027.
Mjólkursamsalan – Teiknisamkeppni
Bitruhálsi 1
110 Reykjavík
Myndir sem berast í keppnina verða ekki sendar til baka að henni lokinni. Verðlaunamyndir verða hins vegar skannaðar og sendar skólastjórnendum á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar um teiknisamkeppnina ásamt vinningsmyndum síðustu ára má finna á vefsíðu keppninnar.

