Beint í efni
En

Mandarínuostakakan mætir í nýjum búningi

Gamla góða mandarínuostakakan hefur fengið ferska yfirhalningu og mætir nú til leiks í nýjum búningi með bragðmeiri botni, litríkum umbúðum og nýrri stærð.

Kakan samanstendur af nýjum og bragðmiklum kexbotni, ómótstæðilegri ostakökufyllingu og frískandi mandarínuþekju sem setur punktinn yfir i-ið. Útkoman er ljúffeng blanda af sætu, ferskleika og góðu biti í botninum.

Nýju umbúðirnar eru litríkar og líflegar og gefa góða vísbendingu um það sem bíður innan þeirra.

Um leið hefur kakan farið úr 600 g í 450 g og er hér komin þægileg stærð sem hentar vel á eftirréttaborðið, í kaffiboðið eða einfaldlega þegar löngunin í eitthvað gott gerir vart við sig.

Við vildum gefa þessari vinsælu köku smá upplyftingu án þess að missa það sem fólk kann að meta við hana. Það besta er svo að undirbúningurinn gæti varla verið einfaldari.

Mandarínuostakakan er tilbúin til að njóta eins og hún er, en fyrir þau sem vilja gera aðeins meira úr stundinni er þeyttur rjómi með einstaklega góð hugmynd.

Nýr búningur, ný stærð og enn meiri ástæða til að fá sér sneið.