
Vinsæla Engjaþykknið með Nóa smá Kroppi snýr aftur.
Eftir ótal fyrirspurnir og mikla eftirvæntingu er gaman að segja frá því að Engjaþykkni með Nóa smá Kroppi snýr aftur. Þegar varan kom fyrst á markað sló hún rækilega í gegn og seldist upp á mettíma. Síðan þá hafa óskirnar um endurkomu hennar reglulega borist til bæði MS og Nóa Síríus og nú er biðin á enda.
Engjaþykkni með Nóa smá Kroppi sameinar dúnmjúka vanillujógúrt og stökkar súkkulaði kornkúlur sem skapa skemmtilega áferð og einstaklega ljúffengt bragð. Samstarf tveggja rótgróinna íslenskra vörumerkja vakti mikla lukku þegar varan kom fyrst á markað fyrir tveimur árum og því er sérstaklega ánægjulegt að geta boðið landsmönnum upp á þessa vinsælu vöru á ný.
Engjaþykkni með Nóa smá kroppi verður fáanlegt um land allt í takmarkaðan tíma. Þeir sem misstu af henni síðast – eða vilja einfaldlega upplifa bragðið aftur – ættu því ekki að láta þetta tækifæri fram hjá sér fara.