
Teiknisamkeppni Skólamjólkurdagsins
Alþjóðlegi Skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim ár hvert og er árið í ár engin undantekning. Nú sem fyrr er það stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO (Food and Agriculture Organization) sem hvetur til hátíðarhalda í tilefni dagsins og hér á landi markar Alþjóðlegi Skólamjólkurdagurinn, 24. september, upphaf árlegrar teiknisamkeppni 4. bekkinga. af því tilefni. Keppnin hefur notið mikilla vinsælda meðal nemenda og kennara um árabil sem sést af frábærri þátttöku ár hvert þar sem að jafnaði berast um og yfir 1.300 myndir í keppnina frá nemendum alls staðar af landinu. Mennta- og barnamálaráðherrar hafa tekið þátt í vali á verðlaunamyndunum til margra ára og talað um mikilvægi keppna á borð við þessa fyrir skólasamfélagið og bindum við vonir við góða þátttöku í ár eins og áður.
Myndefnið er frjálst en í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að tengja það íslensku sveitinni, húsdýrum, hollustu, heilbrigði og ýmis konar hreyfingu en umfram allt viljum við að börnin gefi ímyndunaraflinu og sköpunargáfunni lausan tauminn og sýni hvað í þeim býr. Til mikils er að vinna fyrir duglega teiknara því í mars á næsta ári verða veitt verðlaun fyrir 10 bestu myndirnar að mati dómnefndar og hver mynd verðlaunuð með 40.000 kr. peningagjöf frá MS sem rennur óskipt í bekkjarsjóð viðkomandi. Með þessu viljum við stuðla að því að bekkurinn geti nýtt upphæðina í að gera sér glaðan dag saman í samráði við umsjónakennara, bekkjarfulltrúa og/eða skólastjórnendur.
Myndum skal skilað á A3 blaði fyrir 20. janúar 2026.
Mjólkursamsalan – Teiknisamkeppni, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.
Myndir sem berast í keppnina verða ekki sendar til baka að keppni lokinni en verðlaunamyndir eru skannaðar inn og sendar skólastjórnendum á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar og vinningsmyndir síðustu ára má skoða á vefsíðu keppninnar:
https://www.ms.is/teiknisamkeppni
