
Skráning er hafin í Hleðsluhlaupið
Hleðsluhlaupið verður haldið fimmtudaginn 28. ágúst við Víkina í Fossvogi í þrettánda sinn og í boði eru tvær löglega mældar vegalengdir, 5 km og 10 km. Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdalnum þar sem einn hringur er 5 km og tveir hringir eru 10 km og hlaupið kl 19:00. 12 ára aldurstakmark er í hluapið og allir hlauparar, sem náð hafa þeim aldri, eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir.
Í lok hlaups verða veitt vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki í báðum vegalengdum, dregið úr fjölda glæsilegra útdráttarverðlauna og boðið upp á veglegt kökuhlaðborð í Víkinni
Hleðsluhlaupið hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár þar sem um og yfir 600 hlauparar hafa tekið þátt en hlaupið var valið götuhlaup ársins í einkunnagjöf hlaupara árið 2024 og 2022 og var í öðru sæti árið 2023.
Við hlökkum til að hlaupa með ykkur!



