
Settu þig í hleðslu með nýrri Hleðslu
Íþróttadrykkurinn Hleðsla hefur án efa fest sig í sessi sem einn vinsælasti próteindrykkur landsins og er því einkar ánægjulegt að kynna nýjung í vöruflokknum sem kemur í verslanir í lok júní. Hleðsla með jarðarberjum og vanillu er nýjasta viðbótin í Hleðslufjölskyldunni en gaman er að segja frá því að fylgjendur Hleðslu á samfélagsmiðlum tóku þátt í vali á nýju bragðtegundinni. „Jarðarber og vanilla voru efst á óskalista þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun okkar á nýrri bragðtegund og verður því spennandi að fylgjast með viðtökunum,“ segir Halldóra Arnardóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri. „Til viðbótar höfum við nú í fyrsta sinn bætt trefjum við drykkinn enda er fólk sífellt að leita leiða til að bæta trefjum við mataræði sitt.“
Hleðsla er næringarríkur drykkur unninn úr hágæða íslenskri mjólk og próteinum og hentar vel eftir hvers kyns æfingar og hreyfingu, en ekki síður sem millimál, út á morgunkorn, í búst og bakstur. „Nýjasta nýtt er svo ísgerð, en við sjáum mikla aukningu í að fólk noti Hleðslu til að búa til próteinríkan ís heima fyrir og erum við alltaf jafn ánægð að heyra af nýjum og spennandi notkunarmöguleikum á Hleðslunni,“ segir Halldóra að lokum.
Við látum uppskrift að nýju Hleðslubústi með jarðarberjum fylgja með og vonum að jarðarberjaunnendur taki þessari nýju viðbót fagnandi.

Hleðslu búst með jarðarberjum
- 1 stk. Hleðsla með jarðarberjum og vanillu
- 1 dl frosið mangó
- 1 dl frosin jarðarber
- 1 msk. hnetusmjör
- 2-3 klakar
- Nokkrar skeiðar grísk jógúrt til skrauts (má sleppa)
Aðferð:
Þeytið saman Hleðslu, mangó, jarðarber, hnetusmjör og klaka þar til silkimjúkt. Smyrjið grískri jógúrt innan á fallegt glas og fyllið með bústinu.