
Ostóber hefst af krafti þann 30. september
Mjólkursamsalan hefur til margra árið haldið októbermánuð hátíðlegan undir yfirskriftinni Ostóber - tími til að njóta osta og að þessu sinni ætlum við að hefja herlegheitin með glæsilegu kvöldverðarboði. Meistarar Ostakjallarans hafa töfrað fram einstakan 6-rétta matseðil þar sem ostarnir fá að skína í hverjum rétti, paraðir við vandlega valin vín og bjór.
Kvöldið býður upp á sannkallaða veislu fyrir bragðlaukana þar sem staðbundið gæðahráefni eins og jarðarber frá Jarðarberjalandi, heirloom tómatar frá Friðheimum og úrvals íslenskir ostar koma saman í fullkomnu jafnvægi.
Matseðill kvöldins:
🔹 Diskur 1 & 2: Burrata, Dala Höfðingi, Dala Gullostur, Þeyttur ostakubbur & Risarækja (Parað við Tommasi Prosecco)
🔹 Diskur 3: Reykir, Feykir & Gouda 12+ með nauta filé (Parað við Snorra bjór)
🔹 Diskur 4: Lamba carpaccio með Dala Brie, Óðals Ísbúi & Óðalsostur (Parað við Cono Sur Pinot Noir)
🔹 Diskur 5: Stóri Dímon með wasabi, Ljótur & Flamberaður gráðaostur (Parað við Sandeman Portvín)
🔹 Diskur 6: Chili Auður vaffla, Þeyttur mysingur & Súkkulaði mascarpone (Parað við Louis Eschenauer Sauternes)
Verð: 13.900 kr. á mann (Boðið er upp á óáfenga pörun fyrir þá sem það kjósa).
Plássið er takmarkað – skráðu þig eða bókaðu borð strax í dag!
https://www.dineout.is/sjaland/event/ostober