
Óskajógúrt með eplum og perum
Óskajógúrt er sannkölluð þjóðargersemi enda hefur hún fylgt okkur um áratugaskeið og líkt og fyrir 50 árum er eingöngu notuð hágæða íslensk mjólk í jógúrtina. Það er gaman að segja frá því að nú stækkar jógúrtfjölskyldan með nýrri bragðtegund og við kynnum til leiks Óskajógúrt með eplum og perum.
Hver einasta skeið af Óskajógúrt með eplum og perum er silkimjúk með bragðgóðum bitum, stútfull af hágæða næringarefnum og einstöku bragði. Nýja Óskajógúrtin bætist í hóp sex fjölbreyttra bragðtegunda og því óhætt að segja að þín óskastund geti verið hvar sem er og hvenær sem er, því næsta Óskajógúrt er sjaldan langt undan.