Beint í efni
En

Opnunartími og dreifing yfir hátíðarnar

Kæru viðskiptavinir

Meðfylgjandi eru upplýsingar um opnunartíma söludeildar og afgreiðslu MS í Reykjavík um hátíðarnar og áætlun um dreifingu MS um hátíðarnar.

Opnunartími og dreifing:

Mjög mikilvægt er að panta tímanlega fyrir vöruafhendingu laugardaginn 27. desember, í síðasta lagi fyrir kl. 9 miðvikudaginn 24. des. og fyrir vöruafhendingu laugardaginn 2. janúar, í síðasta lagi fyrir kl. 9 miðvikudaginn 31. des., helst fyrr ef kostur er.

Viðskiptavinir á landsbyggðinni eru beðnir um að kynna sér sérstaklega fyrirkomulag vörudreifingar og pöntunartíma með því að hafa samband við sölufulltrúa í síma 450-1111 eða með tölvupósti netfangið sala@ms.is en áætlun um dreifingu má sjá hér fyrir neðan.

Vagnar: Fyrir stórhátíðir vill brenna við að pökkun og dreifing tefjist vegna vagnaskorts. Vinsamlega gerið ráðstafanir til að vagnar komi til baka með dreifingarbílum. Að öðrum kosti er hætt við töfum á dreifingu á mestu álagstímum.

Við þökkum gott samstarf á árinu og óskum viðskiptavinum okkar nær og fjær gleðilegra jóla.