Beint í efni
En

Próteindrykkur sem beðið hefur verið eftir

MS heldur áfram að gleðja skyrunnendur með nýjum vörum og loksins er kominn á markað nýr Ísey skyr próteindrykkur.

Vinsældir Ísey skyr próteindrykkjanna hafa vaxið mjög síðustu ár og hafa fjölmargir viðskiptavinir óskað eftir nýrri bragðtegund í flokkinn og er því gaman að segja frá því að Ísey skyr próteindrykkur með dökku súkkulaði og vanillu er á leið í verslanir. Drykkurinn er bæði bragðgóður og næringarríkur, kolvetna- og fituskertur og þá inniheldur hver ferna 23 g af próteinum.

Við erum stolt af þessari spennandi nýjung og vonum að neytendur taki henni fagnandi og njóti þess að gæða sér á góðum drykk hvort sem er á ferðinni, sem millimál eða sem nesti í skóla og vinnu.