Beint í efni
En

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn

1. júní ár hvert er Alþjóðlegi mjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim og við í Mjólkursamsölunni gleðjumst yfir því að fagna deginum með íslenskum kúabændum og mjólkurunnendum.

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn var settur á laggirnar af Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) árið 2001 með það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi mjólkur og mjólkurframleiðslu í matvælakerfum heimsins, bæði út frá næringu, samfélagi og efnahag.

Mjólk er meðal næringarríkustu matvæla sem völ er á og inniheldur fjölmörg næringarefni sem líkaminn þarf á að halda. Hún er góð uppspretta próteina, kalks, B-vítamína og fleiri mikilvægra vítamína og steinefna sem gegna mikilvægu hlutverki fyrir vöxt, beinheilsu og almenna vellíðan. Kalk úr mjólkurvörum nýtist líkamanum vel og því eru mjólkurvörur einn besti kalkgjafi sem völ er á.

Við hjá Mjólkursamsölunni erum afar stolt af eigendum okkar, kúabændum og fjölskyldum þeirra um land allt, sem með metnaði og alúð færa landsmönnum holla, hreina, næringarríka og bragðgóða íslenska mjólk alla daga ársins.

Á þessum degi viljum við einnig minna á mikilvægi íslenskrar matvælaframleiðslu og þess öryggis, gæða og þekkingar sem býr að baki hverju glasi af mjólk.

Við óskum kúabændum og öllum mjólkurunnendum innilega til hamingju með Alþjóðlega mjólkurdaginn.