Beint í efni
En

Mjólkursamsalan styrkir hjálparsamtök um 2,5 milljónir

Mjólkursamsalan leggur mikið upp úr stuðningi við góðgerðarmál af ýmsu tagi allt árið um kring enda er samfélagsleg ábyrgð stór þáttur í stefnu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur til margra ára lagt hjálparsamtökum lið í aðdraganda jólahátíðarinnar og hefur 2,5 milljónum nú verið úthlutað í formi vöruinneigna til sjö félaga og er það einlæg von okkar að styrkirnir nýtist þeim sem þurfa vel.

Samtökin sem hljóta styrk að þessu sinni eru Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar og Sjóðurinn góði í Árnessýslu. Öll eiga samtökin það sameiginlegt að gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi en líkt og undanfarin ár þörfin fyrir aðstoð mikil.

Með þessum styrk vill MS leggja sitt af mörkum til að styðja við bakið á þeim stóra hópi sem leitar aðstoðar í formi matarúthlutunar fyrir hátíðarnar og viljum við enn fremur nota tækifærið og þakka stjórnendum og sjálfboðaliðum hjálparsamtakanna fyrir óeigingjarnt starf í þágu skjólstæðinga sinna.