
Mjólkursamsalan notar 100% endurnýjanlega orku
Mjólkursamsalan hefur nú fengið Grænt ljós frá Orkusölunni sem staðfestir að allt rafmagn sem fyrirtækið notaði árið 2025 er 1005 endurnýjanleg raforka, með upprunaábyrgðum samkvæmt alþjóðlegum staðli.
Mjólkursamsalan kaupir raforku frá Orkusölunni en öll raforkuframleiðsla fyrirtækisins kemur frá vatnsaflsvirkjunum sem telst til 100% endurnýjanlegra orkugjafa og því verða til upprunaábyrgðir í samræmi við framleitt magn af raforku hjá Orkusölunni. Mjólkursamsalan hefur nú fengið staðfestingu á kaupum á upprunaábyrgðum fyrir raforkunotkun hjá Orkusölunni fyrir árið 2025 og styður með þeim hætti við framleiðslu og frekari uppbyggingu á endurnýjanlegri orku.
Raforka án upprunaábyrgða telst því ekki 100% endurnýjanleg, þrátt fyrir að hún sé framleidd hér á landi með endurnýjanlegum orkugjöfum. Samkvæmt lögum er Ísland hluti af evrópska orkumarkaðnum og þar með vottunarkerfi um uppruna rafmagns. Upprunaábyrgðir styðja við endurnýjanlega orkuframleiðslu og þar með sporna þær við hlýnun jarðar. Án upprunaábyrgðar telst rafmagnið vera úr sameiginlegum orkupotti Evrópu og þess vegna koma orkugjafar sem ekki eru notaðir á Íslandi, eins og til dæmis kjarnorka, fram á samantekt Orkustofnunar um uppruna raforku hér á landi.
