Beint í efni
En

Mjólkurbikarveisla í vændum

Það er sannkölluð fótboltaveisla framundan á Laugardalsvelli um helgina þegar úrslitaleikir Mjólkurbikars karla og kvenna fara fram. Fjögur lið mæta til leiks og nokkuð ljóst að barist verður um hvern bolta þegar eftirsóttasti bikarinn er í húfi.

Fyrri úrslitaleikurinn fer fram föstudaginn 11. september kl. 19:00 þegar Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikars karla. Mosfellingar hafa átt frábært tímabil og sitja á toppi Lengjudeildarinnar en fram undan er stór áskorun gegn öflugu liði Breiðabliks sem er í fjórða sæti Bestu deildarinnar. Það má því búast við hörkuleik þegar liðin mætast á Laugardalsvelli og úrslitin ráðast í Mjólkurbikarnum.

Laugardaginn 12. september kl. 16:00 taka konurnar svo við þegar Grindavík/Njarðvík og Þróttur mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna. Liðin eru nágrannar í Bestu deildinni og því allar líkur á jöfnum og spennandi úrslitaleik.

Bikarleikjum fylgja oft á tíðum einhverjir óútskýrðir töfrar og þegar komið er alla leið í úrslit getur allt gerst. Við hjá Mjólkursamsölunni erum stolt af því að styðja við íslenska knattspyrnu í gegnum Mjólkurbikarinn og hlökkum mikið til helgarinnar.

Við hvetjum fólk til að fjölmenna á Laugardalsvöll um helgina, taka með sér góða skapið og hvetja liðin áfram. Sjáumst á vellinum!

Miðasala fer fram á miðasöluvef KSÍ: https://midasala.ksi.is/content