Beint í efni
En

Mjólkurbikarinn til 2027

MS, KSÍ og RÚV hafa framlengt samkomulag um markaðs- og sjónvarpsréttindi Mjólkurbikarsins til næstu þriggja keppnistímabila og gildir samkomulagið því út keppnistímabilið 2027.

Mjólkurbikarinn er eitt af mörgum samfélagsverkefnum Mjólkursamsölunnar en fyrirtækið hefur sterkar rætur í íslensku samfélagi og hefur mikla tengingu við íþróttahreyfinguna. Markmið okkar með stuðningi við fótboltann er meðal annars að auka vitund um mjólk og hollustu hennar og tengja fyrirtækið við jákvætt og uppbyggjandi íþróttastarf í landinu.

Þess má geta að Bikarkeppni meistaraflokks karla er 65 ára á þessu ári og fyrst var leikið í Bikarkeppni meistaraflokks kvenna árið 1981. Bikarkeppni KSÍ bar nafn Mjólkurbikarsins árin 1986 til 1996. Mjólkurbikarinn sneri aftur fyrir keppnistímabilið 2018 verður nú a.m.k. út árið 2027.

Mjólkurbikar karla 2025 hófst 28. mars síðastliðinn og alls verða leiknir 44 leikir í fyrstu tveimur umferðum Mjólkurbikars karla áður en leikið verður í 32-liða úrslitum 17.-19. apríl næstkomandi og á sömu dögum hefst 1. umferð Mjólkurbikars kvenna.

Úrslitaleikirnir fara að venju fram á Laugardalsvelli – úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna þann 16. ágúst og úrslitaleikur Mjólkurbikars karla þann 22. ágúst. Við erum gríðarlega stolt af þessu viðamikla verkefni sem teygir anga sína um land allt og hlökkum til að krýna nýja Mjólkurbikarmeistara í lok hvers sumars.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þau Hilmar Björnsson, Þorvald Örlygsson og Halldóru Arnardóttur við undirritun samningsins.