Beint í efni
En

Mjólkin gefur styrk - opið fyrir umsóknir

Nú höfum við opnað fyrir umsóknir í styrktarsjóð Mjólkursamsölunnar Mjólkin gefur styrk fyrir árið 2026.

Markmið sjóðsins er að veita íþróttafólki fjárstyrki vegna æfinga og/eða keppni og styðja þannig við bakið á þeim og auðvelda þeim að stunda íþrótt sína.

Í þessari annarri úthlutun úr sjóðnum verður 2,5 milljónum króna úthlutað til allt að 10 einstaklinga 18 ára og eldri og fær hver styrkþegi 250.000 kr. í sinn hlut.

Umsóknir um styrki:

Einstaklingar, 18 ára og eldri, sem stunda keppnisíþrótt/-ir viðurkenndar af ÍSÍ geta sótt um styrk en ekki íþróttafélög eða deildir innan íþróttafélaga.

Umsóknir skulu sendar á rafrænu formi á netfangið: styrkur@ms.is

Með umsóknum skal fylgja:

  • Kynning á íþróttamanni/konu ásamt mynd
  • Æfingaáætlun og fyrirhuguð þátttaka í keppnum eða öðrum verkefnum
  • Frekari upplýsingar um árangur
  • Markmið íþróttamanns/konu

Við úthlutun styrkja verður ekki einungs horft til fyrri árangurs heldur er markmiðið að styrkja fjölbreyttan hóp íþróttafólks með ólíkan bakgrunn, markmið og framtíðarsýn.

Í úthlutunarnefnd sitja starfsmenn Mjólkursamsölunnar og fulltrúar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, ÍSÍ.

Opið er fyrir umsóknir frá 26. janúar.-28. febrúar 2026 og tilkynnt verður um styrkveitingar þriðjudaginn 14. apríl 2026.

Vinsamlega athugið að styrkþegar 2025 geta ekki sótt um styrk 2026.