
Mjólkin gefur styrk - 2,5 milljónir til íslensks afreksíþróttafólks
Styrktarsjóðurinn Mjólkin gefur styrk leggur sérstaka áherslu á að styðja við íslenskt íþróttafólk vegna kostnaðar sem fellur til vegna æfinga, búnaðar og keppnisferða sem oft vegur þungt í vegferð afreksíþróttafólks. Nú í annarri úthlutun sjóðsins 14. apríl, fyrir árið 2026, er 2,5 milljónum króna úthlutað til 10 framúrskarandi íþróttamanna, sem hver um sig hlýtur 250.000 króna styrk. Með þessari fjárfestingu í íþróttafólki landsins vill MS leggja sitt af mörkum til að skapa enn sterkari grunn fyrir íslenskt afreksíþróttafólk og styðja það í að ná enn lengra á alþjóðlegum vettvangi.
„Við erum afar stolt af því að geta stutt við bakið á íslensku íþróttafólki með þessum hætti. Samstarfið við ÍSÍ við val á styrkþegum var okkur jafnframt afar dýrmætt og viljum við færa þeim kærar þakkir fyrir þeirra framlag,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá MS, en eitt af skilyrðum styrkveitinga var að íþróttagreinar umsækjenda væru viðurkenndar af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. „Það er afar ánægjulegt að MS taki þátt í að styðja við afreksíþróttastarf með því að veita þessu glæsilega íþróttafólki beina styrki. Svona stuðningur getur skipt sköpum fyrir íþróttafólkið sem leggur á sig ótrúlega mikla vinnu alla daga til þess að ná árangri, “ segir Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri ÍSÍ.
Mjólkin gefur styrk – styrkþegar 2026
- Andri Nikolaysson Mateev

- Anna Kamilla Hlynsdóttir - snjóbretti

- Dagbjartur Sigurbrandsson - golf

- Dagur Kári Ólafsson - fimleikar

- Elísa Kristinsdóttir - utanvegahlaup

- Hlynur Andrésson - langhlaup

- Hulda María Agnarsdóttir - körfubolti

- Júlía Kristín Jóhannesdóttir - frjálsar íþróttir

- Marinó Máni Þorsteinsson - listskautar

- Sunna Björgvinsdóttir - íshokkí

Opið var fyrir umsóknir dagana 1.-28. febrúar og gátu einstaklingar 18 ára og eldri sótt um styrk. Alls bárust yfir 120 umsóknir frá öflugum og fjölbreyttum hópi íþróttafólks víðs vegar að af landinu, sem undirstrikar skýra þörf fyrir aukinn stuðning við afreksstarf í íslensku íþróttalífi.
„Umsóknirnar sem bárust sýna glöggt hversu mikill kostnaður fylgir því að stunda afreksíþróttir, hvort sem um ræðir æfingar, búnað eða ferðalög,“ segir Gréta og bætir við að þetta framtak MS er jafnframt liður í því að hvetja önnur fyrirtæki til þátttöku og auka þannig sameiginlegan stuðning við íslenskt íþróttafólk. Með samstilltu átaki atvinnulífsins er hægt að skapa betri aðstæður fyrir afreksfólk til að blómstra og ná árangri.
Um leið og við óskum styrkþegum ársins innilega til hamingju viljum við þakka þeim fjölmörgu sem sendu inn umsókn og óskum þeim góðs gengis með komandi verkefni.