
Lokað á sumardaginn fyrsta
Lokað verður hjá Mjólkursamsölunni á sumardaginn fyrsta, 20. apríl og því verða engar vörudreifingar þann dag.
Við minnum viðskiptavini okkar á að gera viðeigandi ráðstafanir og panta vörur tímanlega miðvikudaginn 19. apríl fyrir afhendingar á föstudag.
Við minnum einnig á pöntunarvefinn okkar www.panta.ms.is.
Starfsfólk MS sendir öllum landsmönnum bestu óskir um gleðilegt og sólríkt sumar.