Beint í efni
En

LGG+ fæst nú í fernu!

Vegna mikillar eftirspurnar höfum við nú ákveðið að bjóða upp á LGG+ með jarðarberjabragði í fernu. Fernurnar eru umhverfisvænn og hagkvæmur kostur og verða í boði samhliða flöskunum en hver ferna inniheldur 455 ml eða 7 dagskammta. Í einum skammti eru yfir 1 milljarður af LGG mjólkursýrugerlum auk a- og b-gerla, heilsutrefja og annarra heilnæmra gerla í fitulausri mjólk. Samsetning LGG+ er með þeim hætti að samverkandi heildaráhrif gerla og náttúrulegra efna gefa hámarks árangur sé þess neytt reglubundið og getur dagleg neysla bætt meltinguna og komið jafnvægi á hana, styrkt ónæmiskerfið og veitt mikið mótstöðuafl gegn kvefi og flensu.

LGG+ hentar fólki á öllum aldri, börnum jafnt sem fullorðnum og með litlum dagskammt af LGG+ styrkjum við mótstöðuafl líkamans og örvum vöxt heilnæmra gerla í meltingarveginum.

Skoða nánar um LGG+ hér