Beint í efni
En

Kolbrún með kúmeni er komin aftur

Kolbrún með kúmeni er á ný komin í verslanir, til mikillar gleði fyrir unnendur íslenskra osta. Kolbrún tilheyrir Ostakjallarafjölskyldunni og er sannarlega einstakur og áhugaverður ostur sem vekur forvitni bragðlaukanna.
Hið hlýja, kryddaða bragð kúmenfræjanna í bland við margslungna bragðtóna ostsins gerir Kolbrúnu að ómótstæðilegum kosti fyrir unnendur íslenskra osta.

Kúmenosturinn smakkast dásamlega með góðu brauði en ekki síður einn og sér og því um að gera að prófa hvort tveggja. Ef þú þekkir einhverja Kolbrúnu mælum við með að gefa henni gómsæta nöfnu úr Ostakjallaranum áður en tækifærið rennur þér úr greipum þar sem osturinn verður aðeins í verslunum í nokkra mánuði.