Beint í efni
En

Kotasæla sem bragð er að

Kotasæla sem bragð er að
Kotasælan frá MS er í uppáhaldi hjá mörgum enda bragðmild, próteinrík og fitulítil og því einstaklega hollur og góður valkostur ofan á brauð, hrökkbrauð og í hvers kyns matargerð.

„Það má í raun segja að sannkallað kotasæluæði hafi gripið landsmenn síðustu misseri og því sérstaklega ánægjulegt að geta nú kynnt til leiks tvær nýjar bragðtegundir sem taka hversdagsmatinn upp á næsta stig,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá MS.

„Kotasæla með chili sriracha færir fólki smá krydd í tilveruna og kitlar bragðlaukana með bragðmiklu en ekki yfirgnæfandi bragði. Fullkomin á brauð, í vefjur, með grænmeti eða beint úr dósinni þegar þú ert í stuði,“ segir Gréta. „Kotasæla með hvítlauk og pipar er mildari en sú fyrri en samt full af karakter, klassísk og bragðgóð með ljúfum hvítlaukskeim og örlitlum pipar. Hér er komin frábær viðbót í salöt, með kexi, eggjum og í alls kyns matargerð.“

Þessar spennandi nýjungar eru á leið í næstu verslun svo nú er ekki annað í stöðunni en að finna sína uppáhalds og gera daginn aðeins bragðbetri.