Beint í efni
En

Kókómjólk fagnar 50 ára afmæli

Einn ástsælasti drykkur þjóðarinnar, sjálf Kókómjólkin, fagnar 50 ára afmæli á árinu og blæs MS til veislu af því tilefni með sérstökum afmælisumbúðum og nýrri auglýsingu. Drykkurinn kom fyrst á markað 1973 og var fyrstu tvö árin í pappahyrnu en svo tók pappafernan við. Umbúðirnar voru þá skreyttar með mynd af ketti hlusta á tónlist og allar götur síðan hefur köttur verið lukkudýr Kókómjólkurinnar. Kötturinn Klói var fyrst nafngreindur 1990 þegar umbúðirnar fengu andlitslyftingu og hefur hann aðeins þroskast og breyst á síðustu áratugum.

Í tilefni 50 ára afmælisins hefur Kókómjólkin verið færð í sérstakan afmælisbúning og prýða fernurnar nú þrjár ólíkar myndir þar sem m.a. má sjá endurgerð á myndinni sem prýddi fyrstu fernurnar; baksvipinn á ketti að njóta ljúfra tóna úr grammófóni. Nostalgían fær líka að njóta sín í nýrri Kókómjólkurauglýsingu í leikstjórn Hannesar Þórs Halldórssonar en þar er sögð sagan af einstakri vináttu sem spannar hálfa öld. Aðalhlutverkin í auglýsingunni eru höndum stórleikarans Hilmars Guðjónssonar og þriggja ungra og upprennandi leikara sem fara algjörlega á kostum í hlutverkum sínum.

Kókómjólk hefur fyrir löngu unnið hug og hjörtu Íslendinga enda passar hún vel með hverju sem er, súkkulaðisnúð eða einni með öllu, með banana eftir góða íþróttaæfingu eða ein sér hvenær sem er. Margir tengjast Kókómjólkinni sérstökum böndum og eiga góðar minningar úr æsku henni tengdri en drykkurinn hefur verið ein vinsælasta vara MS í hálfa öld og drekka Íslendingar um níu milljónir Kókómjólkurferna á hverju ári.

Skoða vörumerkjasíðu Kókómjólkur