Beint í efni
En

Saltkaramelluskyr í stærri umbúðum

Það vakti mikla athygli þegar sérstök eldgosaútgáfa af KEA skyri var sett á markað fyrir tveimur árum síðan en bragðgott saltkaramelluskyrið hitti beint í mark hjá skyrunnendum landsins. Fyrirspurnum rigndi yfir okkur þar sem óskað var eftir skyrinu góða í stærri umbúðum og hefur kallinu nú loksins verið svarað og gaman að segja frá því að KEA skyr með saltkaramellu fæst nú í 500 g dósum. Umbúðirnar sóttu innblástur í eldgosið í Geldingadölum þar sem skyrfjall spúandi eldi og karamellu prýddi dósina en þegar gosinu lauk stóð girnilegt skyrfjallið eftir. Upphaflega stóð til að skyrið yrði aðeins á markaði í stuttan tíma en viðtökurnar fóru langt fram úr væntingum og því er svo komið að í dag hafa neytendur val um 200 og 500 g dósir af þessu bragðgóða, laktósalausa og próteinríka eldgosaskyri.