Beint í efni
En
Íslenskur Twaróg - spennandi nýjung frá MS

Íslenskur Twaróg - spennandi nýjung frá MS

Mjólkursamsalan kynnir spennandi nýjung: íslenskan Twaróg - ostinn sem Pólverjar elska. Twaróg er nýr ferskur ostur sem verður sífellt vinsælli víða um heim, en hann á rætur að rekja til Póllands þar sem hann er meðal þekktustu matvara landsins.

Vinsældir Twaróg hafa farið vaxandi á heimsvísu síðustu ár og er því einkar ánægjulegt að geta loksins boðið upp á íslenska útgáfu af ostinum hér á landi. Twaróg er ferskur og bragðmildur ostur með rjómakenndu bragði sem nýtist á afar fjölbreyttan hátt. Hann er til að mynda afar vinsæll sem álegg á brauð með ýmsu grænmeti, kryddjurtum og pestói. Hann er uppistaða í mörgum eftirréttum og osta-kökum í Póllandi. Hann smellpassar í ýmsan bakstur og fjölbreytta matargerð og má þar nefna ommilettur og salöt.

Uppskrifti á Gott í matinn:
Twaróg salat með radíusum og graslauk

Twaróg er skyldastur Kotasælu, sem við þekkjum svo vel og kvargi, sem er neytt í miklu magni í Þýskalandi og Austurríki, og þó áferðin ostanna sé ólík eiga þeir rjómakennt bragðið sameiginlegt.