Beint í efni
En

Ísey skyr valin besta mjólkurvaran á International Food Contest

Ísey skyr - Mocca vann sérstök heiðursverðlaun á matvælasýningunni International Food Contest sem haldin var í Herning í Danmörku í lok september. Ísey skyr Mocca var valin Besta mjólkurvaran í flokki neysluvara (International Food Contest – Konsum kategori) og sigraði þann flokk með glæsibrag. Þetta er í fjórða sinn sem íslensk vara hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun en MS vann þau árið 2012 fyrir Kókómjólk, 2017 fyrir Ísey skyr með bökuðum eplum og 2023 fyrir Ísey skyr Crème brûlée. Þetta árið sendum við 20 mismunandi bragðtegundir af skyri til dæmingar á Herning og í heild unnu vörur MS til 13 verðlauna sem skiptust þannig, 3 gullverðlaun, 3 silfurverðlaun og 7 bronsverðlaun.

Eigendur Mjólkursamsölunnar, íslenskir kúabændur og starfsmenn eru með eindæmum stoltir af góðum árangri á alþjóðavettvangi en ekki síður af þeim frábæra hópi fagfólks sem íslenskur mjólkuriðnaður býr yfir á öllum sviðum.

Gísli Jósep Hreggviðsson og Dofri Vikar Bragason, fulltrúar MS veittu verðlaununum móttöku.

Heildarskiptingu verðlauna MS má sjá hér fyrir neðan:

  • Ísey skyr Mocca170 g – gull og heiðursverðlaun
  • KEA smáskyr vanilla 90 ml – gull
  • Ísey skyr creme burlee 170 g – gull
  • KEA skyr með kaffi og vanillu 200 g– silfur
  • Ísey skyr jarðarber og hvítt súkkulaði 500 g – silfur
  • Ísey skyr skvísa jarðarber 125 g – silfur
  • Ísey skyr lactose free Blueberry Pie 400 ml – brons
  • Ísey skyr sítrónusæla 170 ml – brons
  • KEA skyr saltkaramella 500 g – brons
  • KEA smáskyr bananar 90 ml – brons
  • KEA smáskyr bananar 90 ml – brons
  • KEA skyr með bláberjum og jarðarberjum 200 g – brons
  • Ísey skyr bláber og hindber 170 g – brons