Beint í efni
En

Ísey skyr styður strákana okkar

HM í handbolta fer fram í Póllandi og Svíþjóð dagana 12.-29. janúar og er óhætt að segja að íslenska þjóðin sé að springa úr spenningi og sé til í slaginn rétt eins og íslenska landsliðið. Strákarnir vita að góð næring skiptir miklu máli og því er er afar ánægjulegt að þeir skuli velja Ísey skyr sem hluta af mataræði sínu. Ísey skyr og starfsfólk MS sendir baráttukveðjur yfir hafið og við hvetjum landsmenn til að fylgjast með leikjum liðsins sem verða allir sýndir í beinni útsendingu á RÚV. Áfram Ísland!