
Ísey skyr sérútgáfa með jarðarberjum og hvítu súkkulaði
Við kynnum með stolti Ísey skyr með jarðarberjum og hvítu súkkulaði! Hér er um svokallaða sérútgáfu að ræða sem verður aðeins á markaði í nokkra mánuði. Bragðið er einstakt svo ekki sé meira sagt og það sama má segja um umbúðirnar en falleg landslagsmynd af Goðafossi í vetrarbúningi prýðir dósina. Ísey skyr með jarðarberjum og hvítu súkkulaði er próteinríkt og kolvetnaskert en það eru einungis 4,3 g kolvetni í hverjum 100 g.Láttu þessa einstöku bragðtegund ekki framhjá þér fara.