Beint í efni
En

Hleðsluhlaupið kosið hlaup ársins 2025

Það er einstaklega ánægjulegt að segja frá því að Hleðsluhlaupið var á dögunum kosið götuhlaup ársins 2025 og þetta er í þriðja sinn sem hlaupið hlýtur titilinn eftirsótta. Á hverju ári stendur hlaup.is fyrir kosningu á götu- og utanvegahlaupum ársins en öll hlaup sem birta úrslitin á hlaup.is eru sjálfkrafa þátttakendur í keppninni.

Kjósendur gefa hverju hlaupi sem þeir tóku þátt í árinu eina heildareinkunn og einstökum þáttum þess líka en þá er horft til umgjarðar og skipulagningar, hlaupaleiðar, brautarvörslu og -merkinga, drykkjarstöðva, og veitinga og verðlauna að hlaupi loknu. Heildareinkunn Hleðsluhlaupsins var 4,75 af 5 mögulegum og munum við halda áfram að gefa allt okkar í að skapa góða upplifun og gleðilegar stundir fyrir þátttakendur.

Hleðsluhlaupið er haldið í miklu og góðu samstarfi við Almenningsdeild Víkings og á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa Víkings, þau Jóhann Guðjónsson og Sirrý Þorgeirsdóttur lengst við vinstri veita verðlaununum móttöku, ásamt fulltrúum hlaupanna sem lentu í 2. og 3. sæti.

Næsta Hleðsluhlaup fer fram 27. ágúst 2026 og við hlökkum til að hlaupa (og borða kökur) með ykkur í Víkinni í sumar!