
Himneskt KEA skyr með hindberja panna cotta
Nú er komin á markað ný og spennandi sérútgáfa af KEA skyri sem verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma. Nýtt KEA skyr með hindberjum og panna cotta er líkt og aðrar KEA skyr bragðtegundir próteinríkt, laktósalaust og einstaklega bragðgott.
Sérútgáfurnar okkar vekja alltaf mikla lukku enda Íslendingar upp til hópa nýjungagjarnir og miklir skyrunnendur og höfum við lagt mikla áherslu á að setja reglulega á markað nýjar og spennandi bragðtegundir. Nýja sérútgáfan með hindberja panna cotta sameinar hefðbundið hindberjabragð og klassíska eftirréttinn panna cotta svo úr verður himnesk blanda.
Við erum þess fullviss að nýja skyrið muni slá í gegn þar sem áferðin er bæði silkimjúk og rjómakennd og gott jafnvægi í bragðinu og vonum að landsmenn næli sér í eina dós eða tvær þegar skyrið lendir í verslunum.