Beint í efni
En

Dala Auður með pipar

Ostaunnendur geta nú heldur betur glaðst því á næstu dögum kemur á markað nýr, ljúffengur og bragðmikill Dalaostur með piparkornum sem lofar að krydda ostaborðið með stæl.

Dala Auður með piparkornum sameinar það besta úr tveimur heimum, silkimjúka og rjómakennda áferð hvítmygluostins og kraftmikinn, létt stingandi karakter heilla piparkorna sem láta ljós sitt skína í hverjum bita.

Dala Auður með piparkornum hentar jafnt á ostabakkann, með góðu súrdeigsbrauði og sætum sultum, sem og bræddur yfir heitan rétt og hamborgara fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt.

Osturinn smellpassar líka með ferskum ávöxtum eða einfaldlega einn og sér – því stundum þarf ekkert meira.

Nýi osturinn er á leið í verslanir á næstu dögum og verður í boði í takmarkaðan tím en miðað við fyrstu viðbrögð gæti hann horfið hratt úr hillunum.

Bragðmikil ostapizza með Dala Auði með piparkornum

Hér á ferðinni klassísk og einstaklega ljúffeng ostapizza sem bragð er af og líklega mín uppáhalds pizzu samsetning hingað til. Nýjasta Dala Auður með piparkornum toppaði pizzuna algjörlega og verður hér eftir notuð á hverju pizzukvöldi. Namm!

  • Súrdeigs pizzabotn, tilbúinn eða heimagerður
  • Pizzasósa
  • Sterk Ítölsk ostablanda
  • Rifinn Mozzarella ostur
  • Hreinn Rjómaostur
  • Dala Auður með piparkornum
  • Nýmalaður svartur pipar
  • Fersk basilíka

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 275°C eða eins hátt og hann kemst. Einnig er upplagt að nota pizzaofn
  2. Fletjið deigið þunnt út, setjið á bökunarplötu og forbakið í 5-10 mínútur eða þar til byrjar aðeins að taka lit.
  3. Takið pizzabotninn úr ofninum, toppið með pizzasósu og nóg af osti. Endið á rjómaosti og Dala Auði með piparkornum og dreifið smá nýmöluðum svörtum pipar yfir.
  4. Bakið í 5-10 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.
  5. Raðið ferskri basiliku yfir pizzuna og berið fram strax.