Beint í efni
En

Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn og teiknisamkeppni 4. bekkinga

Alþjóðlegi Skólamjólkurdagurinn er árlegur viðburður sem haldinn er hátíðlegur víða um heim þann 28. september og hér á landi markar dagurinn upphaf árlegrar teiknisamkeppni sem öllum 4. bekkingum stendur til boða að taka þátt í. Samkeppnin hefur notið mikilla vinsælda meðal nemenda og kennara um árabil, en menntamálaráðherrar hafa í gegnum tíðina talað um mikilvægi keppninnar og tekið þátt í vali á verðlaunamyndunum undanfarin ár. Líkt og áður er það stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO (Food and Agriculture Organization) sem hvetur til hátíðarhalda á þessum degi.

Myndefnið er frjálst en má þó gjarnan tengjast íslensku sveitinni, hollustu og heilbrigði eða hverju því sem nemendum dettur í hug. Krakkarnir eru hvattir til að taka þátt í skemmtilegri keppni og leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín. Að jafnaði berast um 1.300 myndir í keppnina frá nemendum alls staðar af landinu og í mars 2023 verða veitt verðlaun fyrir 10 bestu myndirnar að mati dómnefndar og fær hver verðlaunahafi 40.000 kr. sem renna í bekkjarsjóði teiknaranna.

Myndum skal skilað á A3 blaði fyrir 10. janúar 2023 og merkja: Mjólkursamsalan – Teiknisamkeppni, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.

Myndir sem berast í keppnina verða ekki sendar til baka að keppni lokinni en verðlaunamyndir eru skannaðar inn og sendar skólastjórnendum á rafrænu formi. Vinningsmyndir síðustu ára er að finna á vef verkefnisins skolamjolk.is en vinningsmyndir frá síðustu keppni má sjá hér fyrir neðan.