Beint í efni
En

Abt-mjólk - nýjar umbúðir, sama góða bragðið

Abt-mjólkin er nú komin í nýjar tveggja hólfa litaðar umbúðir en við kveðjum hvítu dósirnar og skiptum yfir í litríkar og fallegar dósir. Abt-mjólk með vanillubragði og morgunkorni fer í græna dós og er komin í verslanir og á næstu misserum fer abt-mjólk með jarðarberjum og morgunkorni yfir í bleika dós. Með þessum breytingum viljum við styrkja enn frekar tenginguna við ab-mjólk þar sem vörurnar innihalda sömu heilnæmu a- og b-gerla sem treysta mótstöðuafl líkamans í meltingarvegi og gera þannig óæskilegum gerlum erfitt uppdráttar.

Nýjar umbúðir – sama góða bragðið.