Beint í efni
En

Grunnskólanemar vinna til verðlauna í teiknisamkeppni

Úrslit í árlegri teiknisamkeppni grunnskólanema liggja nú fyrir en á dögunum tók Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, þátt í vali á verðlaunamyndum í samkeppninni sem hófst sl. haust í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn. Öllum nemendum 4. bekkjar er boðið að taka þátt en þessi skemmtilega teiknisamkeppni hefur notið mikilla vinsælda meðal nemenda, kennara og skólastjórnenda í áraraðir og eru allir sem hlut eiga að máli sammála um að keppnin sé bæði góð hvatning fyrir nemendur og skemmtileg leið til að brjóta upp hefðbundið skólastarf.

Rúmlega 1.200 myndir bárust í keppnina frá 60 skólum um land allt og að lokum voru tíu verðlaunamyndir valdar úr þessum mikla fjölda og hafa skólastjórnendur í viðkomandi skólum fengið gleðifréttirnar. Verðlaunahöfum eru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar og til viðbótar er hver mynd verðlaunuð með 40.000 kr. peningagjöf frá MS, sem rennur óskipt í bekkjarsjóð viðkomandi, og geta nemendur þannig nýtt upphæðina til að gera sér smá dagamun í samvinnu og samráði við umsjónakennara.

Líkt og áður eru verðlaunamyndirnar eins ólíkar og þær eru margar en kýr og mjólkurfernur eru alltaf vinsælustu viðfangsefni nemenda þó myndefnið sé frjálst. „Teiknisamkeppnin er án efa eitt af uppáhaldsverkefnunum okkar í MS en við bíðum spennt eftir nýjum myndum á hverju ári og eigum oft ekki til orð yfir hæfileikum og sköpunargleði krakkanna sem eru ekki nema 9 og 10 ára gamlir,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, ritstjóri vef- og samfélagsmiðla og einn af fulltrúum í dómnefnd keppninnar.

Verðlaunahafar í teiknisamkeppni 4. bekkinga skólaárið 2022-2023 eru:

  • Baldvin Þórir Davíðsson, Lágafellsskóla
  • Daníel Númi Kjærnested, Helgafellsskóla
  • Edda Bjarney Víkingsdóttir, Aþena Vigdís Sigurðardóttir og Ragnheiður Lilja Steinarsdóttir, Síðuskóla
  • Embla Dröfn Hákonardóttir, Salaskóla
  • Guðrún María Hjaltadóttir, Freyja Karítas Finnsdóttir og Aldís Kara Arnarsdóttir, Lindaskóla
  • Júlíana Rós Þorsteinsdóttir, Adríana Diljá Hólm Elísdóttir og Þórdís Embla Guðjónsdóttir, Grunnskóla Fjallabyggðar
  • Kamilla Elín Óttarsdóttir, Breiðagerðisskóla
  • Katla María Kale og Dröfn Hilmarsdóttir, Grunnskóla Vestmannaeyja
  • Lísa Zhu Lyu, Flataskóla
  • Viktoría Dalitso Þráinsdóttir, Árbæjarskóla

Dómnefndin þakkar öllum þátttakendum kærlega fyrir fallegar myndir og óskar vinningshöfum og skólunum þeirra innilega til hamingju.

Meðfylgjandi eru myndir af dómnefndinni og vinningsmyndum ársins, en allar myndirnar verður jafnframt að finna á vef verkefnisins skolamjolk.is.

Gréta Björg Jakobsdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Steinunn Þórhallsdóttir, með verðlaunamyndirnar.

Baldvin Þórir Davíðsson, Lágafellsskóla

Daníel Númi Kjærnested - Helgafellsskóla

Edda Bjarney Víkingsdóttir, Aþena Vigdís Sigurðardóttir og Ragnheiður Lilja Steinarsdóttir, Síðuskóla

Embla Dröfn Hákonardóttir, Salaskóla

Guðrún María Hjaltadóttir, Freyja Karítas Finnsdóttir og Aldís Kara Arnarsdóttir, Lindaskóla

Júlíana Rós Þorsteinsdóttir, Adríana Diljá Hólm Elísdóttir og Þórdís Embla Guðjónsdóttir, Grunnskóla Fjallabyggðar

Kamilla Elín Óttarsdóttir, Breiðagerðisskóla

Katla María Kale og Dröfn Hilmarsdóttir, Grunnskóla Vestmannaeyja

Lísa Zhu Lyu, Flataskóla

Viktoría Dalitso Þráinsdóttir, Árbæjarskóla