Beint í efni
En

Verðlaunaskyr á leið í verslanir

Ísey skyr kynnir nýja og seiðandi sérútgáfu sem gleður bragðlaukana en um er að ræða meiriháttar mokkaskyr sem verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma. Nýja mokkaskyrið hlaut titilinn Besta mjólkurvaran í flokki neysluvara á alþjóðlegu matvælasýningunni International Food Contest í haust og sigraði þann flokk með glæsibrag. Fram til þessa hefur Ísey skyr mokka aðeins verið fáanlegt á erlendum mörkuðum og því einkar ánægjulegt að geta nú loksins boðið upp á það hér heima.

Við vonum að skyrunnendur taki vel á móti verðlaunaskyrinu okkar sem er á leið í verslanir en líkt og annað Ísey skyr er mokkaskyrið silkimjúkt, próteinríkt og stútfullt af næringarefnum. Nýja dósin er auðþekkjanleg þar sem Skógarfoss skartar sínu fegursta á umbúðunum en það hefur verið eitt af sérkennum Ísey skyr sérútgáfanna að gera íslenskri náttúru hátt undir höfði.