Beint í efni
En

Verðbreyting 8. september 2022

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 4,56%, úr 111,89 kr./ltr í 116,99 kr./ltr. og heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar almennt um 3,72%.

Í framhaldi af ákvörðun verðlagsnefndarinnar sem birt var á vef stjórnarráðsins tekur nýr verðlisti Mjólkursamsölunnar gildi frá 8. september 2022 en verðbreytingarnar eru að meðaltali 3,78%.

Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun í mars sl. með gildistöku 1. apríl 2022. Frá síðustu verðákvörðun til septembermánaðar 2022 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 4,56%. Á sama tímabili hefur vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva hækkað um 2,67% og er það grundvöllur hækkunar heildsöluverðs auk hækkunar á afurðaverði.

Verðbreytingar eru að meðaltali 3,78%.