Beint í efni
En

Sannkölluð Mjólkurbikarhelgi á Laugardalsvelli

Það var sannkölluð Mjólkurbikarhelgi á Laugardalsvelli dagana 11.–12. september þegar úrslitaleikir Mjólkurbikars karla og kvenna fóru fram.

Fyrst var spilað um Mjólkurbikar karla þegar Afturelding og Breiðablik mættust á föstudagskvöldinu. Eftir spennandi leik stóð Breiðablik uppi sem sigurvegari, 1–2, og tryggði sér Mjólkurbikarinn 2026.

Á laugardeginum var komið að úrslitaleik kvenna þar sem Grindavík/Njarðvík og Þróttur mættust. Þar var ekki síður mikil spenna en leiknum lauk með 1–2 sigri Þróttar sem fagnaði sínum fyrsta bikarmeistaratitli í sögu félagsins.

Það var því sannkölluð fótboltaveisla í Laugardalnum þar sem leikmenn, stuðningsfólk, sjálfboðaliðar og fjölskyldur komu saman og sköpuðu frábæra umgjörð í kringum úrslitaleikina tvo.

Mjólkurbikarinn er stærsta einstaka samfélagsverkefni MS og erum við einkar stolt af öllum þeim stóra hópi fólks sem kemur að verkefninu um allt land með einum eða öðrum hætti.

Við óskum Breiðabliki og Þrótti innilega til hamingju með Mjólkurbikarinn 2026 og þökkum Aftureldingu og Grindavík/Njarðvík fyrir frábæra úrslitaleiki.

Mjólkin gefur styrk.