Beint í efni
En

Óðals Búri – svo ljúfur, mildur og mjúkur og nú í sneiðum

Óðals Búri – svo ljúfur, mildur og mjúkur og nú í sneiðum

Búri er þessi mjúki, góði og rjómakenndi ostur sem lætur ekki mikið fyrir sér fara við fyrstu sýn en þegar fólk kynnist honum verður hann fljótt ómissandi hluti af hversdagsleikanum.

Búri er einn af Óðalsostabræðrunum og hefur til þessa aðeins fengist í bita en vegna vaxandi vinsælda höfum við brugðið á það ráð að bjóða viðskiptavinum upp á þennan símjúka og bragðgóða ost í 8 sneiða pakkningu.

Innblásturinn að framleiðslu Búra kemur frá dönskum rjóma-Havarti sem hefur um árabil verið þekktur fyrir fágaða mýkt og ríkulegt bragð.

Búri bráðnar mjúklega í munni, er dásamlegur með berjum, perum og kryddsultum og nýtur sín jafnt á ristað brauð, ostabakka og í heita rétti.