
Ostakörfur - gómsætar gjafir fyrir starfsfólk og viðskiptavina
Haustið læðist að okkur og því upplagt að reyna að skipuleggja sig vel og byrja strax að huga að jólagjöfum. Ostakörfurnar frá MS eru sannkallaðar sælkeragjafir sem henta einstaklega vel þegar gleðja á starfsfólk, viðskiptavini, fjölskyldu eða vini. Ostakörfur eru tilvaldar í tækifæris- eða jólagjafir enda er falleg gjafakarfa með úrvali af bragðgóðum íslenskum ostum og öðru góðgæti gómsæt gjöf sem gleður. MS býður líkt og undanfarin ár upp á fjölbreytt ostakörfuúrval þar sem flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, en körfurnar koma í ýmsum stærðum og gerðum.
Í byrjun október opnar sérstök netverslun fyrir ostakörfur; ostakorfur.ms.is, þar sem hægt verður að ganga frá pöntun en sölufulltrúar MS eru jafnframt boðnir og búnir að aðstoða viðskiptavini við val á körfum í síma 450-1111 eða á netfanginu ostakorfur@ms.is
Við vekjum athygli á því að afhending á ostakörfum hefst ekki fyrr en í desember.

