
Öskudagsgleði í Mjólkursamsölunni
Starfsfólk Mjólkursamsölunnar tekur vel á móti syngjandi kátum krökkum á öskudaginn 18. febrúar á starfsstöðvum sínum í Reykjavík, Búðardal, Egilsstöðum og Akureyri. Starfsstöð okkar á Selfossi er því miður lokuð en þess í stað hvetjum við Selfosskrakka að kíkja við í Skyrlandi í Gamla mjólkurbúinu.
Opnunartími fyrir hressa öskudagskrakka er eftirfarandi:
• MS Akureyri kl. 8-13
• MS Búðardal kl. 9-14
• MS Egilsstöðum kl. 8-18
• MS Reykjavík kl. 8-16 (Klói kíkir í heimsókn eftir hádegi)
• Skyrland Selfossi kl. 12-18
Við hlökkum til að sjá skrautlega búninga, hlusta á skemmtileg lög og færa öllum smá glaðning í tilefni dagsins.
