![Björgunarsveitarfólk tekur við fyrstu bakvarðafernunum frá MS](https://images.prismic.io/ms-www/MjExMjUyZWQtNTVjNy00YmY5LWI1ZmQtZWNlZTI3MTUxYThh_landsbjorg-og-mjolkursamsalan.jpg?auto=compress%2Cformat&crop=focalpoint&fit=crop&fp-x=0.50&fp-y=0.50&w=1000&h=563)
Björgunarsveitarfólk tekur við fyrstu bakvarðafernunum frá MS
Um land allt, á nóttu sem degi, allan ársins hring eru fleiri en 5.500 sjálfboðaliðar björgunarsveitanna til taks ef eitthvað bregður út af. Íslendingar búa við náttúruvá af ýmsu tagi og eru á landinu öllu starfræktar 93 björgunarsveitir og 37 slysavarnadeildir sem búa yfir nauðsynlegum búnaði til björgunarstarfa. Til þess að vekja athygli á frábæru starfi björgunarsveita um allt land er ein hlið af mjólkurfernum MS nú tileinkuð Landsbjörg og fólk hvatt til að kynna sér starfsemi félagsins og gerast Bakverðir björgunarsveitanna.
Á meðfylgjandi mynd má sjá sjálfboðaliða hjá Landsbjörg virða fyrir sér nýju fernurnar sem verða í verslunum landsins næstu vikurnar.
landsbjorg.is