Mjólk og mjólkurvörur: Drykkjarvörur, skyr, ostar, rjómi og smjör | Ms.is - Létt G - mjólk. Aðeins 1,5% fituinnihald
16. maí 2008
Létt G - mjólk. Aðeins 1,5% fituinnihald
Komin er á markað ný létt G-mjólk.
G-mjólk hefur gengið einstaklega vel í sölu síðustu misserin og ætti þessi nýjung að vera kærkomin viðbót í flokkinn.
MS Létt G-mjólk er með 1,5% fituinnihaldi eins og Léttmjólk og ætti því að höfða vel til þeirra sem hafa áhuga á fituminni vörum.
Létt G-mjólkin er fáanleg bæði í 250 ml og 1 litra umbúðum.
MS Létt G-mjólk er framleidd hjá MS Selfossi en sala og dreifing er í höndum MS Reykjavík.
Aðrar G-mjólkurvörur frá Mjólkursamsölunni.
Til baka




