Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Nýjar vörur og umbúðir - Dala Feta - 20% meira magn en sama verð
10. mars 2008

Dala Feta - 20% meira magn en sama verð

Dala Feta osturDala Feta línan er komin í nýjar umbúðir. Umbúðirnar eru notendavænni og með víðara opi svo auðveldara er að ná ostinum úr glösunum. Nýju umbúðirnar eru stærri eða 325 gr og því hefur magnið verið aukið um 20%. Rúsínan í pylsuendanum er þó að verðið mun haldast óbreytt frá því sem hefur verið.
 
Um er að ræða fjórar tegundir af Dala Feta; Dala Feta í kryddolíu, Dala Feta með tómötum og ólífum, Dala Feta með sólþurrkuðum tómötum og  Dala Feta með hvítlauk og kóríander

Í hverju glasi eru 170 g af osti og 155 g af kryddaðri olíu.

Dala-Feta er tilvalinn í salöt, sem snarl með ólífum, í ídýfur og í ýmsa gríska rétti og matargerð. Einnig er hann góður í ofnbakaða rétti og á pizzur svo fátt eitt sé talið upp.
 
Í tilefni nýrra umbúða munum við keyra á lukkunúmeraleik, en lukkunúmer er prentað á bakhlið miðans og kemur númerið í ljós þegar innihald í krukkunni minnkar. Á ostur.is er síðan hægt að slá númerið inn í þar til gerðan reit og viðkomandi sér strax hvort hann hefur unnið eða ekki.

Til baka
Leikir í gangi
Heppnar systur unnu flug ...
Nú í sumar var árlegur Sumarleikur Klóa í gangi. Öllum sexum af Kókómjólk í fernu fylgdi lukkumiði og var fjöldi vinninga í boði. Meðal vinninga...

Meira
Fleiri leikir
Landstilboð
Tilboð á ab drykk í dós
Ágætu viðskiptavinir! Í dag hefst landstilboð á öllum bragðtegundum AB-drykkjar í dós. Reikna má með að tilboð þetta gildi út júní 2010....

Meira
Fleiri tilboð
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...

Meira
Fleiri nýjungar