MS léttmál
MS Léttmál – ný vörulína frá MS
Í október kom á markað ný vörulína frá Mjólkursamsölunni sem hefur hlotið yfirheitið MS Léttmál. Vörurnar í línunni tilheyra ýmsum vöruflokkum en eiga það sammerkt að henta vel sem létt millimál fyrir fólk á ferðinni.
Vörurnar í línunni í dag eru Grísk jógúrt með ljúffengum möndlu-, döðlu- og frætoppi og Kotasæla með berja- og möndlutoppi.
Gríska jógúrtin og Kotasælan eru báðar hreinar í grunninn og eru nýju topparnir án hvíts sykurs, en valið á toppunum var vel ígrundað og ríkir mikil ánægja með útkomuna. Möndlurnar eru bragðgóðar og trefjaríkar og gefa góða fyllingu á meðan berin gefa sætubragð frá náttúrunnar hendi. Hér er því um að ræða kærkomna viðbót í fjölbreytta vöruflóru MS, sem ætti að henta þeim sem kjósa þægindi og vilja hollt og fljótlegt millimál án viðbætts hvíts sykurs.
Athugið að tímabundið er vöruafgreiðsla MS lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.