KEA skyr með lakkrísbragði
Á næstu dögum kemur á markað ný bragðtegund í KEA skyr vörulínuna og er um að ræða KEA skyr með lakkrís. Ákveðið var að koma með þessa nýju bragðtegund á markað eftir fjöldamargar fyrirspurnir frá neytendum en mikill áhugi hefur verið að undanförnu á lakkrís í ýmsu formi. Líkt og í KEA skyri með kókós og KEA skyri með ananas og mangó er í nýju bragðtegundinni notast við náttúrulega sætugjafann stevíu en með því er hægt að draga úr sykri um 30-50% en ekki taka hann alveg út. Hér er á ferðinni spennandi nýjung sem skyr- og lakkrísunnendur ættu ekki að láta framhjá sér fara.
450-1111.
mán-fim 8-16 og fös 8-15.
sala@ms.is
Athugið að vöruafgreiðsla MS er lokuð alla virka daga milli kl. 12 og 13.